ae - Hausmynd

ae

Til skammar!!

Einn svartasti dagur þjóðarinnar í dag!!

Hvaða fólk er þetta sem tekur þá ákvörðun fyrir okkar hönd sem samfélags, að senda Ramses til Ítalíu.  Bara af því að það er smuga í lögunum sem segir að við getum hent "vandamálinu" þangað. 

Við getum ímyndað okkur í mannmergðinni á Ítalíu að eitt svona mál komi ekki til með að fá mikla og ígrundaða meðferð.  Líkurnar á að maðurinn endi í Kenía eru mjög miklar mundi ég halda og við vitum hvernig það getur endað!!

Rifjast upp fyrir mér mál tengdadóttur hennar Jónínu, þó svo að það hafi verið aðeins af öðrum toga að þá sýnir það mál manni hvað hefði verið hægt að gera fyrir Ramses!! Maðurinn virðist vera í alla staði til fyrirmyndar og nýorðinn faðir!!!

Svo fóru stuðningsmenn hans inn á akbraut, sem er annað en að fara inn á flugbraut!!  þeir náðu að tefja 3 vélar í akstri en ekki í flugtaki eða lendingu!! mikill munur þar á.  Mæli ekki með svona mótmælum en er ánægður með að það er einhver að gera eitthvað. 

Nei í dag skammast ég mín fyrir að vera íslendingur og vona að þeir sem þessa ákvörðun tóku megi eiga margar andvökunæturnar af samviskubiti, þeas ef einhver samviska er fyrir hendi!!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband